Bruðl...eða hvað
11.8.2010 | 09:03
Menn hafa haft á orði undanfarin ár þvílíkt bruðl liggi í flugeldasýningum, hvort sem eru á viðburðum eins og getið er í frétt eða í einkasýningum sem eru tengdar áramótum.
"Taka bara 5 þúsund kallinn og brenna'nn"
En í þessu gleymist styrkurinn sem "bruðlinu" fylgir og fellur í flestum tilfellum í vasa björgunarsveita hér og þar um landið. Ég gef mér að fólk viti í hvað sá peningur er notaður.
Ef dregið er úr framlögum eða þeim alfarið hætt þá hlýtur það að hafa áhrif á rekstur björgunarsveitanna til hins verra.
Ég er persónulega tvístíga í þessu máli en horfi þá á þetta útfrá því, að ef hætt yrði við viðkomandi sýningar, þá fái björgunarsveitirnar styrk í öðru formi.
Þó kemur það á vogarskálarnar að þarna fá fleiri eitthvað útúr styrknum og einnig að fátt er skemmtilegra en að sjá börn á öllum aldri horfa forviða á sjónarspilið með ánægjusvip.
Þetta er nú einn af fáu skemmtilegu hlutunum sem eftir eru til að njóta "frítt" á þessum síðustu og verstu.
Fjármögnun flugeldasýninga á Menningar- og Ljósanótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.